|
Á Lækjarbrekku eru fjölbreyttir Dagseðlar og Kvöldseðlar alla daga vikunnar. Í hádeginu sérhæfum við okkur í léttum, ferskum réttum á borð við súpur, salöt, ferskan fisk og kjúkling. Í síðdeginu er léttur kaffihúsabragur á veitingastaðnum með girnilegum réttum eins og t.d. smárétti, samlokur, kaffi, kökur og pönnukökur. Á kvöldin ræður svo fjölbreytileikinn för.
Við erum með allt frá forréttum og grænmetisréttum yfir í íburðamikla kjötrétti og fiskrétti. Allir matgæðingar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Matseðilinn samanstendur m.a. af íslenskum humri, ferskum fisk dagsins, íslensku fjallalambi, lundaréttum og fleiru.
|
|